Flataskóli vill auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru lands og hafs. Flataskóli vill stuðla að góðri umgengni og sjálfbærri nýtingu allra auðlinda og vinna gegn hvers konar mengun og umhverfisspjöllum. Því er Flataskóli grænn skóli og tekur þátt í verkefninu skólar á grænni grein sjá http://www.landvernd.is/graenfaninn/

Gænfáninn var veittur skólanum fyrst árið 2008. Í skólanum hefur verið settur umhverfissáttmáli sem lýsir í stuttu máli heildarstefnu skólans í umhverfismálum og umhverfismennt og framtíðarsýn. Þegar Grænfáninn blaktir við hún er haldið áfram að vinna að umhverfismarkmiðum skólans og keppst er við til að skólinn fái Grænfánann endurnýjaðan, því að á tveggja ára fresti fer fram endurmat á stöðu umhverfismála. Í janúar 2010 var formlega sótt um endurnýjun grænfánans og hér má lesa greinargerð með þeirri umsókn.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi