Myndskot af Evrópu 2009-2010
eTwinningverkefni veturinn 2009 - 2010
Okkur hefur verið boðið að taka þátt í verkefninu Myndskot af Evrópu "A Snapshot of Europe". Þetta er eTwinning verkefni um stafræna ljósmyndun og fara samskipti fram á netinu.
Verkefnið gengur út á að grunnskólanemendur taka myndir af náttúrunni/fólki sem síðan eru sendar á vef verkefnisins (keppni) í lok apríl 2010. Um 30 skólar í Evrópu taka þátt í þessu verkefni og er Flataskóli eini skólinn á Íslandi sem hefur verið boðin þátttaka, en aðeins einn skóli frá hverju Evrópulandi má taka þátt í verkefninu.
Markmið verkefnisins er að nemendur læri að taka stafrænar myndir, líta eftir tækifærum að góðu myndefni í nánasta umhverfi sínu og kynnist umhverfi og menningu landa í Evrópu.
Hér er kjörið tækifæri fyrir foreldra að leiðbeina börnum sínum við stafræna myndatöku án þess þó að taka myndirnar fyrir þau. En nemendur mega einnig taka myndir utan skólans á eigin myndavélar/síma og við hvetjum til þess.
Reglur verkefnisins eru einfaldar:
-
Nemendur taka sjálfir myndirnar
-
Myndirnar eiga að vera af náttúrulegum viðfangsefnum
|
Verkefnið hefur fengið viðurkenninguna National Quality Label National Quality viðurkenningu fá kennarar sem unnið hafa samstarfsverkefni sem eru vel uppbyggð og vel skipulögð verkefni á vegum eTwinning. Hún staðfestir að verkefnið hefur náð ákveðnum evrópskum staðli. Hægt er að fá tvenns konar viðurkenningar fyrir eTwinning verkefni annars vegar þessa og hins vegar Europea Quality viðurkenninguna. |
|
.
Myndakeppni Flataskóla
Til að safna myndum í þetta verkefni höfum við ákveðið að vera með myndakeppni í Flataskóla næstu mánuði og fá nemendur til að senda 2 - 3 bestu myndirnar sínar til umsjónarmanns (Kolbrúnar kennsluráðgjafa) í hverjum mánuði. Síðan er mynd mánaðarins valin og hengd upp og vinningshafi fær umsögn og viðurkenningarskjal fyrir myndina sína.
Í apríl verða svo vinningsmyndirnar sendar í lokakeppnina "A Snapshot of Europe". Þar skoða nemendur allar myndir sem settar hafa verið á vefinn frá skólum þátttökulandanna og gefa stig. Í lok apríl verður svo uppskeruhátíð í beinni útsendingu þar sem bestu myndirnar verða valdar.
Myndir fyrir hvern mánuð þurfa að hafa borist til umsjónarmanns í síðasta lagi fyrir 10. hvers mánaðar þ.e.a.s. 10. janúar fyrir desembermyndir. Netfangið er kolla@flataskoli.is. Einnig má koma með myndavélarnar til hans og fá aðstoð við að taka myndirnar af vélunum. Nemendur taka einnig myndir í skólanum undir umsjón kennara sinna.
Hægt er að skoða myndir frá hinum Evrópulöndunum á TwinSpace svæðinu þar sem verkefnið er geymt. Skráðu þig inn með notendanafnið: snapshots og lykilorðið: RTCc3B
Smelltu á A SNAPSHOT OF EUROPE - HOME og veldu síðan PROJECT ACTIVITIES við hliðina á HOME flipanum og skrunaðu neðar á síðuna til að skoða myndirnar frá löndunum. Daglega bætast nýjar myndir við safnið. Til að skoða myndirnar þarftu að smella á tölurnar hjá viðkomandi landi.
Viðfangsefni:
|
|
Á þessari "flickr"- síðu getur þú skoðað myndirnar sem nemendur sendu inn í verkefnið.
Smelltu á krækjurnar hér fyrir neðan til að sjá verðlaunamyndirnar í keppninni í Flataskóla (2009-2010)
Mynd desembermánaðar er eftir Orra Gunnarsson í 1. bekk
Mynd janúarmánaðar er eftir Þóri Björn Guðjónsson í 6. bekk
Mynd febrúarmánaðar er eftir Jóhönnu Maríu Bjarnadóttur í 3. bekk
Mynd marsmánaðar er eftir Anítu Theodórsdóttur í 5. bekk