6. bekkur
Nemendum í 6. bekk var boðið í heimsókn í Hönnunarsafn Garðabæjar sl. fimmtudag. Þar fengu þau kynningu á því hvað við gerum sem hönnuðir ef við fáum tiltekin vandmál í hendurnar. Hópnum svar skipt upp og unnu þeir fimm saman að því að leysa ýmis vandamál eins og t.d. heimilisstörfin ef þau eru leiðinleg, hvað getum við gert til að auðvelda okkur þau og gera þau skemmtileg? Það er alltaf dót á gólfinu, getum við hannað eitthvað sem auðveldar okkur að ganga frá því. Nemendur voru þarna í 2 kennslustundur og skemmtu sér konunglega.