Fimmtudaginn 5. nóvember fórum við í vinahóp 2 úr 5. bekk til vina okkar í 1. bekk. Við vorum með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá fyrir nemendur 1. bekkja sem við skipulögðum sjálf.

Menningarferð - Mánudaginn 28. okt. 2009 fór 5.bekkur í menningarferð með strætó til Reykjavíkur til að fræðast um landnám Íslands. Við skoðuðum Landnámssýninguna 871+-2 Þar fengum við frábæra fræðslu um landnámið sem á eftir að nýtast okkur í skólastarfinu.

Fyrsta sólarveislan okkar í 5. bekk var 24. sept. 2009 Fyrir valinu varð dótadagur eins og sjá má þá þessum myndum.

Kartöfluuppskeruhátíð var í heimilisfræði þriðjudaginn 8. sept.2009. Smiðja fjögur eldaði dýrindis rétti úr karftöflunum sem við ræktuðum. Má þar nefna kartöflusúpu, franskar kartöflur og ýmsa aðra karföflurétti. Allir réttirnir brögðuðust mjög vel og myndirnar tala sínu máli.

 

Í dag fimmtudag 2. sept 2009 fór hluti af 5. bekk að taka upp kartöflur.
Í næstu viku verður uppskeruhátíð í heimilisfæði og þá verða búnir til nokkrir kartöfluréttir sem við fáum að smakka.

 


Nemendur í 5. bekk eru mjög skapandi eins og sjá má á þessum listaverkum þeirra "Náttúra í náttúru".

 

Í 5. bekk erum við með hringekju einu sinni í viku á fimmtudögum. Þá er hópnum skipt í 5 hópa sem skiptast á að fara á vinnustöðvarnar.

 

Við í 5. bekk fórum í menningarferð til Reykjavíkur með strætisvagni. Við heimsóttum Þjóðminjasafnið og fræddumst þar um landnám Íslands. Einnig brugðum við okkur í búninga og settum okkar í spor landnámsmannanna. Skemmtilegt verkefni eins og sjá má á þessum myndum.


 


 


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi