Þessir krakkar voru að vinna að undirbúningi siða í listformi. Nemendurnir sýndu einstaklega góða samvinnu og unnu veggspjaldið af mikilli list.

Fimmtudaginn 5. nóvember kom vinahópur 2 úr 5. bekk til okkar í 1. bekk. Nemendur í 5. bekk voru með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá fyrir nemendur 1. bekkja sem þeir höfðu skipulagt sjálfir.

Við fórum niður í Vigdísarlund í tveimur hópum. Fyrst fóru drengirnir og svo stúlkurnar en allir unnu sömu verkefnin. Verkefni dagsins var að telja. Við köstuðum á milli okkar mjúkum poka og töldum um leið og pokinn fór á milli. Við töldum líka hve margar spýtur voru í brúargólfinu á litlu brúnni við Vigdísarlund.

Við æfðum okkur enn í að telja í útikennslu í dag en einnig æfðum við samvinnu þar sem að við unnum saman í pörum. Við drógum miða úr boxi og á honum var tala frá 1 og upp í 20. Við þurftum jafnmikið af einhverju og stóð á miðanum.

Hér eru nokkrar myndir úr skólastarfinu. Við fórum m.a. í lítinn boltaleik á ganginum og notuðum til þess borðtenniskúlu, kubba og einhvers konar fötu/bakka. Markmiðið var að koma kúlunni ofan í bakkann með því að kasta henni í gólfið og þaðan í bakkann. Þessi leikur þroskar meðal annars nákvæmni.

Okkur finnst stærðfræðibókin okkar Sproti, mjög skemmtileg. Hún er litrík og full af áhugaverðum verkefnum sem okkur þykir gaman að vinna. Mörgum hverjum finnst bókin það skemmtileg að þegar það er valtími setjast sumir niður og vinna í bókina Sprota.

Nemendur í 1.bekk unnu dúkkulísur af sjálfum sér og settu í réttan afmælislestarvagn.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi