Óveður
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra.
Aðaláherslan er á að foreldrar meta í hverju tilviki hvort þeir vilja halda börnunum heima en verða þá að tilkynna það sem leyfisbeiðni til skólans. Einnig er áhersla á að skólarnir sjái til þess að það verði alltaf einhver starfsmaður í skólunum til að taka á móti þeim sem mæta þrátt fyrir að senda hafi verið út tilkynning um að skólahald falli niður.
Um er að ræða tvö viðbúnaðarstig vegna óveðurs:
VIÐBÚNAÐARSTIG 1:
Röskun verður á skólastarfi vegna erfiðleika starfsfólks og nemenda við að komast til skóla – foreldrar fylgi börnum í skólann.
VIÐBÚNAÐARSTIG 2:
Skólahald fellur niður. Hér er fyrst og fremst átt við yngri börn en það er algjörlega á ábyrgð foreldra og háð mati þeirra. Þegar rætt er um foreldra er átt við foreldra og aðra forráðamenn.
Hér fyrir neðan eru viðbragðsáætlanir í PDF formi - annars vegar fyrir starfsfólk grunnskóla og hins vegar fyrir foreldra og forráðamenn:
Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Reglur um viðbrögð starfsfólks í grunnskólum
Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna
Á fleiri tungumálum - in other languages:
Request on reactions of parents and guardians. The Capital District Fire and Rescue
Service prepared the request in collaboration with the education authorities in the
Greater Reykjavík Area.
Pdf document in other languages
Disruption of school operations due to storms - Enska
ZAKŁÓCENIA PRACY SZKÓŁ Z UWAGI NA ZŁĄ POGODĘ - Pólska
ИЗМЕНЕНИЯ В РАБОТЕ ШКОЛ В СВЯЗИ С НЕПОГОДОЙ - Rússneska
Interrupción de las actividades escolares debido a tormentas - Spænska
ผลกระทบต่อการเรียนการสอนเนื่องจากสภาพอากาศที่เลวร้าย - Tælenska