Reglugerð um starfsemi skólaráða í samráði við samtök sveitarfélaga, kennara og foreldra sem ráðherra setur.

Við grunnskóla skal starfa skólaráð (skv. lögum nr. 91, 8. gr.) sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.  Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.  Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.  Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endaleg ákvörðun um þær er tekin.  Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.  Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.

Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúm kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir stafi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess.  Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra.  Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári.

Fulltrúar í skólaráði Flataskóla 2010-2011

Fulltrúar í skólaráði Flataskóla 2009-2010 (stofnað 25. nóvember 2008)

Fundagerðir skólaráðs Flataskóla

Starfsreglur skólaráðs Flataskóla

Reglugerð um skólaráð við grunnskóla

 

 


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi