Þróunarverkefni 2008 - 2009

 

Byrjendalæsi
Fyrir skólaárið 2008-2009 fékk Flataskóli styrk til að hefja þróunarverkefni um byrjendalæsi í fyrsta og öðrum bekk í Flataskóla. Verkefnistjórar verða Sigurlaug Jónsdóttir og Guðlaug Einarsdóttir. Faglega ráðgjöf veitir Steinunn Torfadóttir lektor í sérkennslufræðum við Kennaraháskóla Íslands.
Verkefnið var í anda þess fyrirkomulags sem verið var að þróa bæði í Evrópu (Bretlandi) og Bandaríkjunum og tók mið af niðurstöðum nýrra lestrarrannsókna.
Meginmarkmið verkefnisins var að bæta skipulag lestrarkennslunnar og móta kennslufyrirkomulag sem mætti þörfum allra nemenda. 

Áfangaskýrsla um byrjendalæsi - janúar 2009

Lokaskýrsla um byrjendalæsi - júlí 2009

 

Útikennsla
Flataskóli fékk einnig styrk fyrir skólaárið 2008-2009 til að hefja þróunarverkefni um Útikennslu í Flataskóla. Verkefnistjóri var Ragna Gunnarsdóttir en faglegan stuðning veitti Auður Pálsdóttir, aðjunkt við KHÍ. Aðstaða til útikennslu var aukin bæði á skólalóðinni sem og í næsta nágrenni og kom starfsfólk skólans, nemendur og foreldrar að hönnun og uppbyggingu útikennslusvæðisins.
Meginmarkmið verkefnisins var að móta aðstæður til útináms út frá breyttum áherslum nýrrar aðalnámsskrár.

Áfangaskýrsla um útikennslu -  janúar 2009

Ferð tveggja kennara til Tékklands á námskeið í útikennslu í apríl 2009

Innanhúsþing í maí 2009 vegna útikennslu

Lokaskýrsla um verkefnið útikennsla 

______________________________________________________________________

Þróunarverkefni 2006 - 2007

Fjölbreyttir kennsluhættir
Flataskóli vann að þróunarverkefni veturinn 2006 - 2007 um fjölbreytta kennsluhætti. Ráðgjafi verkefnisins var Lilja M. Jónsdóttur, lektor við Kennaraháskóla Íslands.

Meginmarkmið verkefnisins var að efla fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf með það í huga að auka veg fjölbreyttra kennslu- og námsmatsaðferða.

Stefnt var að koma sem best til móts við einstaklingsmiðaðar þarfir nemenda (áhuga, hæfileika, getu og viðhorf). Þá var stefnt að verkefnum sem beindust að því að auka ábyrgð nemenda á eigin námi. Einnig má nefna aukinn þátt skapandi starfs, samvinnunáms og heildstæðra viðfangsefna þar sem byggt var á upplýsingaleit, úrvinnslu og fjölbreyttri miðlun. Skýrsla um verkefnið er hér.

Unnið var áfram á svipuðum nótum veturinn 2007- 2008 og var gert í þróunarverkefninu árið 2006-2007.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi