Fréttir
Lífshlaupið hafið
Þá er lífshlaupið hafið í Flataskóla og allir eru með bæði nemendur og starfsfólk. Mikill hugur er í fólki og allir ætla að gera sitt besta. Farið var með allan hópinn í morgun í klukkustundargöngu um Garðabæ og þótti ... [ nánar ]Flataskóli í 9. sæti
Nú er búið að tilkynna röðina í Evrópska keðjuverkefninu sem 5.AG tók þátt í á dögunum. Belgía vann með 299 stigum og Þýskaland varð í öðru sæti með 275 stig. Við hlutum 9. sætið með 174 stig. Hér fyrir neðan er hægt að sjá ... [ nánar ]Skákdagurinn 2012
Skákdagur Íslands var haldinn í fyrsta sinn í gær fimmtudaginn 26. janúar. Skákdagurinn er haldinn til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Við hér í Flataskóla hvöttum nemendur til að tefla í skólanum og drógum ... [ nánar ]Leikið í snjónum
Það voru glaðir og duglegir krakkar úr 2. bekk sem léku sér úti í dag og nýttu snjóinn til að útbúa stórt snjóhús með mörgum göngum. ... [ nánar ]Óveður
Vegna ófærðar og rysjótts veðurfars undanfarið er rétt að benda á að upplýsingar um skólagöngu við slíkar aðstæður er að finna á vefsíðu skólans ætlaðar foreldrum/forráðamönnum nemenda og biðjum við viðkomandi að kynna sér þær.... [ nánar ]25. janúar 2012
Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins
Nýlega var samþykkt reglugerð sem tekur til ábyrgðar nemenda með hliðsjón af aldri þeirra, þroska og aðstæðum. Þá tekur hún til réttinda og skyldna aðila skólasamfélagsins í allri starfsemi á vegum skóla, skólabrags, samskipta í skóla, skólareglna og málsmeðferðar vegna brota á þeim. ... [ nánar ]Brjálaði hárdagurinn
síðustu viku var haldinn "brjálaður hárdagur". Nemendur og kennarar gerðu sér glaðan dag og fundu upp á ýmsu skemmtilegu og frumlegu til að hafa í hárinu og setja upp frumlega hárgreiðslu. Sumir létu meira segja klippa sig á frumlegan ... [ nánar ]Bóndadagur
Í tilefni bóndadagsins var karlmönnum í starfsliði skólans komið á óvart í morgunkaffinu með uppábúnu borði, kertaljósi og örlitlu sýnishorni af hinu og þessu af þorramat til að gera þeim daginn eftirminnilegan. Einnig fengu þeir gómsæta súkkulaðitertu í eftirrétt. Höfðu allir af þessu mikið gaman og stemningin á kaffistofunni var létt og skemmtileg enda föstudagur og helgin fram undan. Nemendur ... [ nánar ]eTwinningverkefni 5.AG
Fimmti bekkur hefur verið að vinna með eTwinningverkefnið "The European Chain Reaction" eða Evrópsku keðjuna undanfarið. Þetta er annað árið í röð sem við tökum þátt í sams konar verkefni og tókst okkur að ná 4. sæti af 12 í... [ nánar ]Foreldrar fengu fræðslu
Í morgun fengu foreldrar fræðslu hjá nemendum í 6. bekk um Norðurlöndin sem haldin var á skólasafninu. Nemendur hafa búið til vefi á Wikispaces með ýmsum fróðleik um Norðurlöndin og þótti tilvalið að fá foreldra ... [ nánar ]Stjörnuverið í heimsókn
Í morgun kom hann Snævarr með stjörnuverið sitt, en hann hefur komið árlega í heimsókn til okkar og spjallað við nemendur um stjörnurnar og himingeiminn. Stjörnuver er sýndarheimur þar sem áhorfendur sitja inni í kúlulaga hvelfingu og sérstakt sýningartæki varpar mynd af stjörnuhimninum á veggi hennar. Í stjörnuverinu ... [ nánar ]6. bk. kynnir Norðurlandaverkefni
Í morgun var æfing hjá sjötta bekk þar sem nemendur voru að kynna vefsíður sem þeir hafa verið að búa til í tengslum við Norðurlandaverkefni. Nemendur bjuggu til vefsíður í Wikispaces um hvert land og settu inn áhugaverðar upplýsingar ... [ nánar ]Ný gjaldskrá tómstundaheimilis
Nýjar gjaldskrár fyrir leikskóla og tómstundaheimili tóku gildi nú um áramótin. Almennt hækka gjaldskrár Garðabæjar um 5% á milli áranna 2011 og 2012 sem er áætluð verðlagsbreyting á milli ára. Nálgast má gjaldskrár ... [ nánar ]Jólaskemmtun 2011
Skólastarfi haustannar 2011 lauk í dag 20. desember á hefðbundinn hátt með jólaskemmtun. Tvær skemmtanir voru haldnar í morgun þar sem vinabekkjum voru saman. Nemendur mættu spariklæddir í stofu hjá umsjónarkennurum sínum og ... [ nánar ]Skólastarfið í dag
Nú var síðasti kennsludagur fyrir jól í Flataskóla, en á morgun verða litlu jólin þar sem nemendur koma prúðbúnir og dansa saman með kennurum sínum í kringum jólatréið og syngja jólalög. Einnig verður fluttur ... [ nánar ]Borgarferð og heimsókn á Bæjarból
Það hefur verið mikið að gera hjá fyrstu bekkingum undanfarið en þeir fóru í heimsókn á Bæjarból með vinum okkar á Stjörnuholti. En Stjörnuholt er útibú frá leikskólanum Bæjarbóli og er elsta deildin í skólanum hérna ... [ nánar ]2. bekkur - sleðaferð
Það var sólarveisla hjá 2.bekk á föstudaginn. Ákveðið var að fara í sleðaferð með nestið. Heppnaðist þetta mjög vel og ánægjan skein ... [ nánar ]Klúbbur um gömlu barnabækurnar
Á skólasafninu hefur verið stofnaður bókaklúbbur sem hefur meðal annars það markmið að vekja áhuga nemenda á gömlum og sígildum bókum. Nemendur í 5. KÞ riðu á vaðið og gerðust margir þeirra meðlimir í bókaklúbbnum. Eftir lestur bókanna komu nemendur á skólasafnið ... [ nánar ]Kertagerð hjá 3. bekk
Afi og amma hans Tómasar Andra í 3. bekk buðu bekknum hans heim til sín á föstudagsmorguninn 9. desember í Fífumýrina. Þar tók á móti okkur kertaljós í klakaluktum og ilmur af nýbökuðum bollum og ... [ nánar ]Jóladagskrá
Stofujól 19. desember (mánudagur) Mánudaginn 19. desember eru stofujólin (litlu jólin) sem er jafnframt síðasti kennsludagur skv. stundakskrá fyrir jól. Nemendur mega koma með sparinesti, gos og smákökur.... [ nánar ]Ævar heimsótti 4. bekk ásamt Jóni frá Marel
Ævar vísindamaður úr Stundinni okkar kom í Flataskóla í síðustu viku ásamt Jóni Inga Herbertssyni frá hátæknifyrirtækinu Marel. Þeir félagar komu færandi hendi með um 40 eintök af Glósubók Ævars vísindamanns, eitt handa hverjum nemanda í 4. bekk. Í Glósubókinni birtir Ævar vísindamaður allar merkilegustu tilraunir ... [ nánar ]Flataskólamessa í Vidalínskirkju á sunnudag
Við minnum á Flataskólamessuna, þriðja í aðventu, sunnudaginn 11. desember kl. 11 í Vídalínskirkju. Sr. Jóna Hrönn sér um stundina, en allir ... [ nánar ]Félagsvist 6. bekkja og gesta
Nýlega spiluðu sjöttu bekkingar félagsvist í sal skólans ásamt nokkrum gestum sínum. Nemendur hafa verið að æfa sig að spila vist um nokkurt skeið og komu spenntir og vel æfðir til leiks. Eftir ánægjulega spilamennsku var ... [ nánar ]Flýgur fiskisagan
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 4. bekk unnið verkefni tengt bókinni ,,Flýgur fiskisagan“ eftir Ingólf Steinsson. Verkefnið var samþætt námsgreinunum íslensku, samfélagsfræði og vinnu á skólabókasafni, en þar nutu nemendur ... [ nánar ]Ísgerð í útikennslu
Það var skemmtilegt í útikennslu hjá þriðja bekk í vikunni. En þeir bjuggu til ljúffengan súkkulaði- og jarðarberjaís. Mjólk og sósa var sett í poka og lokað vel fyrir. Því næst var settur klaki og salt í annan poka ásamt mjólkurblöndu... [ nánar ]1. bekkur á Þjóðminjasafninu
Fyrsti bekkur fór í heimsókn á Þjóðminjasafnið í gær þriðjudaginn 29. nóvember til að skoða sýningu sem heitir Gullin mín. Þar skoðuðu þau hvernig lífið var í baðstofunni í gamla daga. Nemendur fengu að kemba ull, prófa að stroka og léku ... [ nánar ]Heimsókn til Lettlands
Dagana 30. október til 5. nóvember síðastliðinn fóru þrír kennarar í Flataskóla, þau Erna Þorleifsdóttir, Hafþór Þorleifsson og Ólöf Sighvatsdóttir í náms- og kynnisferð til Lettlands í tenglsum við Nordplus verkefni. En það er samskiptaverkefni Eistlands, Lettlands, Litháens og Íslands en alls hittust 12 kennarar í Preili í Lettlandi. ... [ nánar ]Prjónað fyrir Japan
Handverkssýningin "Prjónað fyrir Japan" var sett upp í Flataskóla föstudaginn 25. nóvember. Á sýningunni getur að líta verk nemenda skólans, foreldra og forráðamanna þeirra, starfsmanna og hollvina skólans sem hafa ekki látið sitt eftir liggja og sent skólanum myndarlegar gjafir. ... [ nánar ]Evrópska keðjan verðlaunuð
Í gær fékk eitt af eTwinning samskiptaverkefnum Flataskóla "Evrópska keðjan" sem við tókum þátt í á vorönn 2011 viðurkenningu sem eitt af fjórum bestuverkefnum sem lögð voru fram hjá MEDIA-award. En eins og áður hefur komið fram lentum við í 4. sæti af 13 með okkar myndband en kennararnir Hafþór Þorleifsson og Guðbjörg ... [ nánar ]Rithöfundur í heimsókn hjá 2. og 3. bekk
Í dag kom Hendrikka Waage í heimsókn til okkar í 2. og 3. bekk. Hún las upp úr nýju bókinni sinni „Rikka og töfrahringurinn í Japan“. Bókin fjallar um Rikku sem á töfrahring og með hjálp hans getur hún ferðast um heiminn... [ nánar ]Heimsókn til Englands
Dagana 18. til 22. október s.l. fóru tveir starfsmenn, Kolbrún Svala Hjaltadóttir kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni og Sólveig Jóhannsdóttir starfsmaður á bókasafni Flataskóla í heimsókn til Englands í tengslum við Comeníusarverkefnið Sköpunarkrafturinn - listin að lesa. Skólinn sem var heimsóttur ... [ nánar ]Sveinbjörn ferðabangsi
Ferðabangsinn okkar hann Sveinbjörn hefur haft í ýmsu að snúast í haust. Hann er þegar búinn að fara í nokkrar ferðir með félögum sínum á haustönn og núna nýlega var hann á Akureyri og þar áður var hann við Álftavatn í Grímsnesi.... [ nánar ]W.A. Mozart í Tónlistarsafni Íslands
Mánudaginn 21. nóvember fóru nemendur 2. bekkja ásamt kennurum fótgangandi í Tónlistarsafn Íslands í Kópavogi. Þar tók á móti okkur fríður flokkur tónlistarfólks og sjálfur Mozart sem lá steinsofandi í sófa í einu horni safnsins. Aría næturdrottningarinnar úr Töfraflautunni hljómaði ... [ nánar ]Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Flataskóla í gær sem endranær undanfarin ár. Dagurinn var helgaður Jóni Sigurðssyni og ævistarfi hans. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni í þemavinnu. Meðal annars var unnið með þjóðleg minni, vætti, frelsishetjur, skjaldarmerki, frímerki, skrímsli og þjóðarblóm. Barnaleikir ... [ nánar ]Norræna skólahlaupið
Fyrir nokkru tókum við þátt í Norræna skólahlaupinu. Með norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur, kennara og annað starfslið skólanna til þess að æfa hlaup og auka við hreyfingu sína. Lögð er áhersla á að kynna nauðsyn þess að hreyfa sig og reyna á líkama sinn á ýmsan hátt og stuðla þannig að betri heilsu ... [ nánar ]Norræna bókasafnsvikan
Norræna bókasafnsvikan er haldin hátíðleg í mörgum almennings- og skólasöfnum á Norðurlöndunum á hverju ári. Þemað er mismunandi frá ári til árs en nú var þemað ,,Norrænn húmor ". Á skólasafni Flataskóla ... [ nánar ]2. bk. - Jól í skókassa
Nemendur í 2. bekk taka þátt í verkefninu „Jól í skókassa“. Makrmið verkefnisins er að gleðja börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika og auka skilning, virðingu, samkennd og umburðarlyndi og að geta sett sig í ... [ nánar ]Hjálparsveit skáta gaf endurskinsmerki
Í dag fengu nemendur í 3. bekk endurskinsmerki að gjöf frá Hjálparsveit Skáta í Garðabæ. Nemendur fengu einnig bókamerki þar sem ... [ nánar ]5. bekkur - spilavinir komu í heimsókn
Í gærkvöldi komu félagar frá spilavinum í heimsókn í 5. bekk og spiluðu við foreldra og nemendur. Komu þeir með margvísleg spil með sér og kynntu þau en veittu einnig kennslu í að spila þau. Var gerður góður rómur að uppákomunni ... [ nánar ]Lestrarmaraþon hjá 7. EÁ
Það er hefð fyrir því að sjöundu bekkir fái að gista á skólasafni Flataskóla einu sinni á vetri og lesi þá sérvalda bók. Bekkjarkennarinn og bókasafnsfræðingurinn gista með þeim og er þetta afar vinsæll viðburður sem nemendur minnast ... [ nánar ]Hljóðfærasmíði á Hönnunarsafninu
Nemendum í 1. og 2. bekkjum var boðið á Hönnunarsafn Íslands í kennslustund í hljóðfærasmíði undir handleiðslu og stjórn Pamelu De Senzi. Hljóðfærasmíðin er liður í undirbúningi fyrir Listadaga ungmenna í Garðabæ. ... [ nánar ]5. bk. í Þjóðmenningarhúsinu
Föstudaginn 28. október fór 5. bekkur í vettvangsferð á sýninguna "Óskabarn- æskan og Jón Sigurðsson" sem er í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Nemendur fóru í strætisvagni með kennurum sínum og aðstoðarfólki. Gekk ferðin mjög vel og voru nemendur til sóma í alla staði. Verið er að vinna ... [ nánar ]Bangsavika á bókasafninu
Mikið fjör var á skólasafninu síðustu viku en þá var bangsavika haldin hátíðleg. Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október og þessa viku koma yngstu nemendur skólans með bangsa að heiman í bókasafnstímann sinn. Nemendur frá leikskólunum ... [ nánar ]Brúum bilið
Í síðustu viku var sameiginlegur álmusöngur nemenda 1. bekkja og Stjörnuholts. Álmusöngurinn var sá fyrsti í röðinni af mörgum sem fyrirhugaðir eru í vetur. Nemendur læra vallög hvors hóps um sig og flytja ... [ nánar ]5. bekkur á Bókasafni Garðabæjar
Nemendur í 5. bekk fóru í vikunni ásamt Ingibjörgu bókasafnsfræðingi í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar. Markmiðið með heimsókninni var að tryggja að nemendur þekktu almenningssafnið í bænum og vissu hvað það hefði upp á að bjóða. Rósa... [ nánar ]Lestrarátak 6.OS
Lestrarátaki í 6. bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Allir náðu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu ... [ nánar ]6.OS - skólahlaup UMSK
Föstudaginn 14.október tók 6.OS þátt í Skólahlaupi UMSK. Að þessu sinni var hlaupið á frjálsíþróttavellinum við Varmárskóla í Mosfellsbæ og tóku tæplega 700 krakkar í 4.-7.bekk þátt í ár. Okkar hlauparar stóðu sig með stakri prýði bæði á hlaupabrautinni og utan hennar. Elín Helga náði 2. sæti í keppni stúlkna á tímanum 2:57,89, sem er frábær tími í 800 metra hlaupi og hefði nægt henni til ... [ nánar ]Evrópska vinnuverndarvikan 2011
Evrópska vinnuverndarvikan 2011, Öruggt viðhald - Allra hagur, verður að þessu sinni haldin 24. – 28. október. Í tilefni þess verður haldin ráðstefna á Grand Hóteli þriðjudaginn 25. október kl. 13.00 - 16.00. ... [ nánar ]2. bekkur á Alþingi
Annar bekkur fór í heimsókn á Alþingi og fékk að skoða fundarsal, þingpalla og fleira innanhúss. Tekið var vel á móti þeim og voru nemendur fræddir um sögu hússins og innviði þess. Fengu þau síðan drykk og kleinur í lok heimsóknar... [ nánar ]Lestrarátak 5. bekkja
Lestrarátaki í fimmta bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Lestraráhuginn var gríðarlega mikill og lásu nemendur samtals 29.165 blaðsíður eða hver nemandi las að meðaltal 747 blaðsíður. Gaman var að sjá hversu áhugasöm börnin voru við lesturinn en þau skráðu umsagnir um bækurnar á lestrarvegg bekkjanna á 5AG og 5KÞ... [ nánar ]Hreyfimyndagerð hjá 7. bekk
Nú hefur fyrsti hópur í smiðju hjá 7. bekk lokið vinnu sinni á námskeiði í hreyfimyndagerð. Nemendur byrjuðu á því að setja niður hugmynd á blað og útbúa síðan út frá henni handrit. Þá er tekið til við að útbúa leikmynd og í kjölfarið ... [ nánar ]Evrópu gæðastimpill fyrir samskiptaverkefni
Í dag fékk Flataskóli fimm gæðaviðurkenningar frá landsstjórn eTwinning í Evrópu fyrir samskiptaverkefni sem unnin voru á síðast liðnum vetri. En það eru tvö Comeníusarverkefni, Vængjaðir vinir og Sköpunarkrafturinn - listin að lesa og eitt ... [ nánar ]6. bekkur í Norræna húsið
Nemendur í 6. OS fóru í námsferð í Norræna húsið fimmtudaginn 6. október. Leiðsögumaður um húsið var Pia Viinikka. Pia spurði nemendur spjörunum úr um höfuðborgir, þjóðfána og æðstráðendur á Norðurlöndunum... [ nánar ]Lestrarátak hjá 4. bekk
Lestrarátaki í fjórða bekk er nú lokið en það stóð yfir alla síðustu viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Flestir náðu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu reiknað með. ... [ nánar ]5. bekkur á Þjóðminjasafninu
Fimmti bekkur fór í heimsókn á Þjóðminjasafnið í vikunni sem leið. En þetta er liður í vinnu með landnámsverkefni sem þau eru að vinna að í samvinnu við Ingibjörgu Baldursdóttur bókasafnsfræðing á skólasafninu okkar. Fengu nemendur ... [ nánar ]Sólarveisla - Hawaii-hátíð
Fimmti bekkur valdi að halda Hawaii-hátíð í fyrstu sólarveislunni sinni á föstudaginn 23. september. Nemendur lögðu til búninga og ávexti að hætti Hawaii-búa og lögðu hátíðarsalinn undir sig þar sem þeir ásamt starfsfólkinu dansaði ... [ nánar ]Prjónað fyrir Japan
Þriðjudaginn 20. september kom starfsfólk Flataskóla saman á prjónakvöldi og prjónaði til styrktar munaðarlausum börnum í Japan. Verkefnið "Prjónað fyrir Japan" er góðgerðarverkefni sem bæði nemendur og starfsfólk ... [ nánar ]Enskukennsla
Fimmtudaginn 15. september komu þrír enskir gestakennarar í heimsókn í Flataskóla og tóku nokkrar orðaglímur með nemendum í 6. OS. Glímt var við orðin watermelon, United Kingdom, motorway, sports, furniture... [ nánar ]Göngum í skólann
Verkefnið Göngum í skólann er nú haldið í fimmta sinn hér á landi. Verkefnið hófst 7. september og því lýkur 5. október. Sem fyrr er lögð áhersla ... [ nánar ]Útivistardagur
Útivistardagur var í Flataskóla í dag. Allt starfsfólk skólans ásamt nemendum heimsóttu Guðmundarlund í Kópavogi. Farið var í rútum og léku veðrurguðirnir við okkur og við áttum notalega stund þarna í lundinum. Farið var í leiki... [ nánar ]Alþjóðlegur dagur læsis
Sameinuðu þjóðirnar hafa síðan 1965 eða í 46 ár helgað þessum degi málefnum læsis. Til að vekja athygli á deginum ákvað bókasafnsfræðingur að gera eitthvað í tilefni hans. Þannig að í gær 8. september fóru allir nemendur í 3. - 7. bekk í ratleik ... [ nánar ]Skólaþing 6. og 7. bekkja
Í dag sátu nemendur í 6. og 7. bekk á skólaþingi sem haldið var í salnum okkar. Stefnt er að því að halda reglulega skólaþing í Flataskóla þar sem allir nemendur koma saman og fá tækifæri til að tjá sig á lýðræðislegan hátt. Nemendur ... [ nánar ]Prjónað fyrir Japan
Í gangi er núna verkefnið "Prjónað fyrir munaðarlaus börn í Japan". Fimmti, sjötti og sjöundi bekkur taka sérstaklega þátt í verkefninu en aðir í skólanum leggja því einnig lið eins og starfsfólkið. Áætlað er að prjóna eyrnabönd eða ... [ nánar ]Útikennsla hjá 2. og 5. bekk
Kennarar notuðu vel fyrstu daga skólaársins til að láta nemendur vinna úti að ýmsum verkefnum enda var veður með afbrigðum gott. Nemendur í öðrum bekk fóru út á Vífilstaðaveg með stærðfæðibókina sína þar sem þeir áttu að skoða hvernig fólk sem fór framhjá þeim ferðaðist, var það gangandi, akandi, hjólandi ... [ nánar ]Mötuneytið
Í dag tók mötuneytið frá fyrirtækinu Skólamatur til starfa. Nemendur fengu sælkerakjötbollur með BBQ sósu og kartöflum að borða þennan fyrsta dag. Var ekki annað að sjá en að þeim líkaði vel maturinn því flestir fóru aftur og fengu ... [ nánar ]Fyrstu skóladagarnir
Þá er fyrsta vikan búin og nemendur og starfsfólk skólans komið vel af stað með skólastarfið. Veðrið hefur leikið við okkur og margir nemendur hafa farið í berjamót út í hraunið með kennurum sínum. Hér er hægt ... [ nánar ]Skólasetning
Í dag setti nýi skólastjórinn okkar Ólöf Sigurðardóttir skólann í fyrsta sinn en hún tók aftur til starfa í Flataskóla núna í ágúst. Hún hafði áður starfað við skólann sem kennari fyrir nokkrum árum. Nemendur komu í þremur hópum í hátíðarsal skólans og einkar ánægjulegt að sjá hve margir foreldrar fylgdu börnum sínum þennan fyrsta dag í skólann. Skólastjórinn bauð foreldra sérstaklega velkomna og hvatti þá til að koma ... [ nánar ]Skólamáltíðir í Flataskóla
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar þriðjudaginn 16. ágúst sl. var samþykkt að taka tilboði Skólamatar ehf. í framleiðslu og framreiðslu á mat í grunnskólum Garðabæjar. Frá því að tilboði er tekið þurfa skv. lögum að líða 10 dagar þar til hægt er að ganga frá samningi við fyrirtækið. Þar af leiðandi ... [ nánar ]Kennarar á námskeiði
Í morgun fékk starfsfólk Flataskóla Jóhann Inga Gunnarsson sálfræðing í heimsókn þar sem hann ræddi um ýmislegt er tengdist samskiptum manna á milli. Meðal annars ræddi hann um hvernig hægt væri að skapa góða liðsheild, auka jákvæði ... [ nánar ]Skólabyrjun
Skrifstofan hefur nú opnað að nýju eftir sumarleyfi. Hún er opin frá 8:00 til 15:30. Kennarar skólans hefja síðan skólastarfið á því að fara á námskeið næstkomandi fimmtudag og föstudag. Starfsfólk skólans vikuna ... [ nánar ]Sumarlokun
Skrifstofa Flataskóla verður lokuð frá fimmtudeginum 23. júní og opnar aftur mánudaginn 8. ágúst. Erindi má senda á netfang skólans: flataskoli@flataskoli.is Skólasetning er mánudaginn 22. ágúst nánari tímasetning ... [ nánar ]Innkaupalistar haustið 2011
Síðast liðin ár hefur skólinn séð um innkaup á gögnum sem nemendur í 1. – 4. bekk þurfa að nota í skólanum s.s. stílabækur, möppur, lím, skriffæri... [ nánar ]Skólaslit 2011
Skólaslit fóru fram í dag í skólanum. Nemendur fengu námsmatið sitt eftir veturinn. Fyrstu sex bekkirnir voru kvaddir um morguninn í hátíðarsal skólans tveir og tveir árgangar í senn. Síðan var 7. bekkur kvaddur sérstaklega við hátíðlega ... [ nánar ]Skólaslit miðvikudag
Skólaslit Flataskóla verða miðvikudaginn 8. júní. Nemendur mæti til skólaslita sem hér segir: Kl. 9:00 1. og 2. bekkur Kl. 10:00 3. og 4. bekkur Kl. 11:00 5. og 6. bekkur ... [ nánar ]Fuglaverkefni - 2. bekkur
Síðastliðnar tvær vikur hafa nemendur í öðrum bekk unnið í samstarfi við Ingibjörgu bókasafnsfræðing skólans með verkefni um fugla. Nemendur kynntu sér fjöldann allan af fuglum, skoðuðu útlit þeirra og hegðun ... [ nánar ]Íþróttadagur
Hinn árlegi íþróttadagur Flataskóla var í dag og vorum við heppin með veður þótt frekar kalt væri í lofti þá skein sólin annað slagið. Að venju var margt í boði fyrir nemendur m.a. brennó, bandý, þríþraut, boggia, boðhlaup, þrautabrautin og fleiri boltaleikir... [ nánar ]Kynning fyrir foreldra í 5. bekk
Nemendur í 5.OS hafa á vorönninni unnið stórt og mikið verkefni í landafræði á skólasafninu og með bekkjarkennara sínum. Bekknum var skipt í átta hópa og fékk hver hópur einn landshluta til að vinna með. Nemendur öfluðu upplýsinga um landshlutana í bókum, af Netinu og margmiðlunardiskum, útbjuggu ... [ nánar ]Stærðfræðileikar á Netinu
Í byrjun mars tóku allir bekkir skólans fyrir utan 1. bekk þátt í stærðfræðileikum á Netinu - Mathletic. En leikarnir stóðu í 8 daga og var frír aðgangur á vefinn þessa daga. Er þetta í annað sinn sem skólinn tekur þátt í þessu ... [ nánar ]Sumarlesturinn
Nemendur í 3. bekk fóru nýlega ásamt Ingibjörgu, bókasafnsfræðingi og kennurum sínum í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar. Rósa barnabókavörður tók á móti hópnum og fræddi nemendur um hvað almenningssafnið hefur upp á að bjóða. Hún sýndi þeim safnið og kynnti fyrir þeim SUMARLESTURINN... [ nánar ]Jákvæðnidagar í Flataskóla
Jákvæðnidagar voru haldnir að frumkvæði stjórnar nemendafélags Flataskóla dagana 10.-13. maí s.l. Nemendafélag skólans hefur komið að ýmsum þáttum í hugmyndavinnu og framkvæmd verkefna og uppbrots í skólastarfi vetrarins. Með virku starfi stjórnar nemendafélagsins er stuðlað að auknu nemendalýðræði ... [ nánar ]Myndskot af Evrópu
Nú er verkefninu Myndskot af Evrópu að ljúka, en það hefur verið í gangi í vetur. Búið er að velja fjórar myndir fyrir Íslands hönd og voru það 5. bekkingar sem voru duglegastir að senda inn myndir og eiga nú allar myndirnar sem ... [ nánar ]Vortónleikar 1. og 2. bekkja
Föstudaginn 20. maí s.l. héldu 1. og 2. bekkir sína árlegu vortónleika. Að venju var foreldrum og aðstandendum boðið á tónleikana sem haldnir voru um morguninn hjá 2. bekk og í hádeginu hjá 1. bekk. Margir gestir komu á tónleikana ... [ nánar ]23. maí 2011