01. febrúar 2012

Lífshlaupið hafið

Flataskólahópurinn eftir gönguna
Þá er lífshlaupið hafið í Flataskóla og allir eru með bæði nemendur og starfsfólk.  Mikill hugur er í fólki og allir ætla að gera sitt besta.  Farið var með allan hópinn í morgun í klukkustundargöngu um Garðabæ og þótti það takast vel.  Var á orði að þetta ætti að vera daglegur viðburður.  En nú er um að gera að hreyfa sig og standa með sínu liði og sínum skóla. Nemendur skulu hreyfa sig að minnsta kosti klukkustund á dag á meðan starfsfólkið þarf minnst 30 mínútur. Hér má sjá upplýsingar um verkefnið.

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi