Meðferð eineltismála í Flataskóla
Ef grunur leikur á eða staðfesting liggur fyrir að einelti eigi sér stað er það skýr stefna Flataskóla að tekið sé á málinu strax.
Eineltismál eru mismunandi og fer vinna hvers máls eftir eðli þess. Aðgerðir skulu taka mið af hvort um grun eða sannanlegt einelti sé að ræða. Einnig þarf að meta hvort um aðstæður sé að ræða þar sem hætta er á ferðum.

Grunur um einelti

Möguleg viðbrögð:

  • Fylgjast betur með nemanda í kennslustundum og frímínútum.
  • Spyrjast fyrir meðal samstarfsfólks og nemenda. Biðja ákveðna aðila, t.d. aðra kennara eða skólaliða um að fylgjast með nemandanum.
  • Nemendur skrifa um líðan og bekkjaranda.
  • Ræða við valda nemendur.
  • Blanda saman viðtali og skriflegu verkefni nemenda.
  • Gera félagslega tengslakönnun í bekknum.
  • Hafa samráð og leita upplýsinga hjá forráðamönnum.

Þegar nægar upplýsingar liggja fyrir þarf að ákveða hvort þörf sé á frekari aðgerðum.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi