Comenius miðar að því að koma á gæðastarfi í skólum og tryggja Evrópuvitund í menntun.

Styrkt eru fjölþjóðleg samstarfsverkefni við skóla víðs vegar í Evrópu. Einnig er lögð áhersla á að auka möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar kennara og efla tungumálanám á öllum skólastigum.

Comenius er hluti nýrrar menntaáætlunar Evrópusambandsins og tekur til leik-, grunn- og framhaldsskóla. eTwinning var sett á laggirnar í janúar 2005 en nú heyrir það undir Comenius. COMENIUSAR-þáttur Menntaáætlunar ESB er nefndur eftir tékkneska guðfræðingnum, heimspekingnum og uppeldisfrömuðinum Johann Amos Comenius (1592-1670). Hann var sannfærður um að með menntun gæti maðurinn nýtt hæfileika sína til fulls.
Mörg þeirra verkefna sem unnin eru undir merkjum Comeniusar líkjast því starfi sem verið er að gera undir merkjum eTwinning, þar af leiðandi er ekkert því til fyrirstöðu að skrá Comeniusverkefnið líka sem eTwinning verkefni. Ávinningurinn af því fyrir kennara er sá að með tvöfaldri skráningu verkefnisins kemst kennarinn inn í stuðningskerfi eTwinning sem meira en 25.000 skólar í Evrópu eru aðilar að, auk þess að fá gjaldfrjálsan aðgang að ýmsum veftækjum og tólum.

  • Tveir kennarar hafa fengið styrk úr sjóði Comeníusar 2009 til að fara á námskeið í útikennslu.
  • Kolbrún Svala Hjaltadóttir kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni hefur fengið styrk úr sjóðnum til að fara á vikunámskeið til Möltu og kynna sér hvernig hægt er að nýta tölvu- og upplýsingatækni í starfi og kennslu.

Flataskóli hefur fengið tvo styrki til að taka þátt í evrópskum samstarfsverkefnum:

  1. Verkefnið Vængjaðir vinir - Our feathery friends  er tveggja ára verkefni og var unnið veturna 2009-2011. Umsjónarmaður verkefnisins var Hjördís Ástráðsdóttir.
  2. Verkefnið Sköpunarkrafturinn - listin að lesa - "The Art of Reading - Power of Creativity"   er einnig tveggja ára verkefni og er unnið veturna 2010 - 2012. Umsjónarmenn verkefnisins eru Ingibjörg Baldursdóttir og Kolbrún Svala Hjaltadóttir.

 Vefsíða Comeníusar á Íslandi     



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi