Nemendur
Skólaárið 2011-2012 munu rúmlega 260 nemendur í 1. – 7. bekk stunda nám í skólanum í 14 bekkjardeildum. Kennsla hefst kl. 8:30 á morgnana en nemendur geta mætt fyrr ef þeir þurfa. Skólinn er opnaður upp úr kl. 7:30 og eftir kl. 8:00 eru kennslustofurnar opnar fyrir nemendur til að lesa og/eða spjalla saman undir umsjón skólaliða. Bókasafnið er einnig opið frá 8:00 fyrir nemendur til að taka bækur að láni og lesa sér til gagns og gamans. Skipulögðu starfi skóla lýkur kl. 14:00 hjá 1. – 4. bekk og kl. 14:10 hjá 5. – 7. bekk.