Mynd með frétt10. maí 2012

Bókakynning fyrir vinabekk

Að undanförnu hafa bækur sem foreldrar nemenda í Flataskóla lásu sem börn verið stillt upp á áberandi stað í skólasafninu til að vekja athygli nemenda á þeim. Tveir nemendur úr sjöunda bekk, þeir Gunnlaugur Hans og Tryggvi Pétur buðu vinabekk sínum, sem ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. maí 2012

Kynning á bókasafni

Á vorönn hafa nemendur í 5.bekk unnið stórt og mikið verkefni um landafræði Íslands á skólasafninu með aðstoð bekkjarkennara og bókasafnsfræðingi skólans. Bekkjunum var ... [ nánar ]
Mynd með frétt10. apríl 2012

Tröll í hrauninu

Fyrsti bekkur fór í morgun út í hraun með kennara sínum og bókasafnsfræðingi að finna tröllaandlit. Verkefnið sem þeir eru að vinna að er í tengslum við steinaverkefni ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. janúar 2012

Foreldrar fengu fræðslu

Í morgun fengu foreldrar fræðslu hjá nemendum í 6. bekk um Norðurlöndin sem haldin var á skólasafninu. Nemendur hafa búið til vefi á Wikispaces með ýmsum fróðleik um Norðurlöndin og þótti tilvalið að fá foreldra ... [ nánar ]
Mynd með frétt13. desember 2011

Klúbbur um gömlu barnabækurnar

Á skólasafninu hefur verið stofnaður bókaklúbbur sem hefur meðal annars það markmið að vekja áhuga nemenda á gömlum og sígildum bókum. Nemendur í 5. KÞ riðu á vaðið og gerðust margir þeirra meðlimir í bókaklúbbnum. Eftir lestur bókanna komu nemendur á skólasafnið ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. desember 2011

Flýgur fiskisagan

Undanfarnar vikur hafa nemendur í 4. bekk unnið verkefni tengt bókinni ,,Flýgur fiskisagan“ eftir Ingólf Steinsson. Verkefnið var samþætt námsgreinunum íslensku, samfélagsfræði og vinnu á skólabókasafni, en þar nutu nemendur ... [ nánar ]
Mynd með frétt22. nóvember 2011

Rithöfundur í heimsókn hjá 2. og 3. bekk

Í dag kom Hendrikka Waage í heimsókn til okkar í 2. og 3. bekk. Hún las upp úr nýju bókinni sinni „Rikka og töfrahringurinn í Japan“. Bókin fjallar um Rikku sem á töfrahring og með hjálp hans getur hún ferðast um heiminn... [ nánar ]
Mynd með frétt22. nóvember 2011

Sveinbjörn ferðabangsi

Ferðabangsinn okkar hann Sveinbjörn hefur haft í ýmsu að snúast í haust. Hann er þegar búinn að fara í nokkrar ferðir með félögum sínum á haustönn og núna nýlega var hann á Akureyri og þar áður var hann við Álftavatn í Grímsnesi.... [ nánar ]
Mynd með frétt15. nóvember 2011

Norræna bókasafnsvikan

Norræna bókasafnsvikan er haldin hátíðleg í mörgum almennings- og skólasöfnum á Norðurlöndunum á hverju ári. Þemað er mismunandi frá ári til árs en nú var þemað ,,Norrænn húmor ". Á skólasafni Flataskóla ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. nóvember 2011

Lestrarmaraþon hjá 7. EÁ

Það er hefð fyrir því að sjöundu bekkir fái að gista á skólasafni Flataskóla einu sinni á vetri og lesi þá sérvalda bók. Bekkjarkennarinn og bókasafnsfræðingurinn gista með þeim og er þetta afar vinsæll viðburður sem nemendur minnast ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. nóvember 2011

Bangsavika á bókasafninu

Mikið fjör var á skólasafninu síðustu viku en þá var bangsavika haldin hátíðleg. Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október og þessa viku koma yngstu nemendur skólans með bangsa að heiman í bókasafnstímann sinn. Nemendur frá leikskólunum ... [ nánar ]
Mynd með frétt24. október 2011

5. bekkur á Bókasafni Garðabæjar

Nemendur í 5. bekk fóru í vikunni ásamt Ingibjörgu bókasafnsfræðingi í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar. Markmiðið með heimsókninni var að tryggja að nemendur þekktu almenningssafnið í bænum og vissu hvað það hefði upp á að bjóða. Rósa... [ nánar ]
Mynd með frétt24. október 2011

Lestrarátak 6.OS

Lestrarátaki í 6. bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Allir náðu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu ... [ nánar ]
Mynd með frétt13. október 2011

Lestrarátak 5. bekkja

Lestrarátaki í fimmta bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Lestraráhuginn var gríðarlega mikill og lásu nemendur samtals 29.165 blaðsíður eða hver nemandi las að meðaltal 747 blaðsíður. Gaman var að sjá hversu áhugasöm börnin voru við lesturinn en þau skráðu umsagnir um bækurnar á lestrarvegg bekkjanna á 5AG og 5KÞ... [ nánar ]
Mynd með frétt06. október 2011

6. bekkur í Norræna húsið

Nemendur í 6. OS fóru í námsferð í Norræna húsið fimmtudaginn 6. október. Leiðsögumaður um húsið var Pia Viinikka. Pia spurði nemendur spjörunum úr um höfuðborgir, þjóðfána og æðstráðendur á Norðurlöndunum... [ nánar ]
Mynd með frétt05. október 2011

Lestrarátak hjá 4. bekk

Lestrarátaki í fjórða bekk er nú lokið en það stóð yfir alla síðustu viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Flestir náðu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu reiknað með. ... [ nánar ]
Mynd með frétt09. september 2011

Alþjóðlegur dagur læsis

Sameinuðu þjóðirnar hafa síðan 1965 eða í 46 ár helgað þessum degi málefnum læsis. Til að vekja athygli á deginum ákvað bókasafnsfræðingur að gera eitthvað í tilefni hans. Þannig að í gær 8. september fóru allir nemendur í 3. - 7. bekk í ratleik ... [ nánar ]
Mynd með frétt06. júní 2011

Fuglaverkefni - 2. bekkur

Síðastliðnar tvær vikur hafa nemendur í öðrum bekk unnið í samstarfi við Ingibjörgu bókasafnsfræðing skólans með verkefni um fugla. Nemendur kynntu sér fjöldann allan af fuglum, skoðuðu útlit þeirra og hegðun ... [ nánar ]
Mynd með frétt31. maí 2011

Kynning fyrir foreldra í 5. bekk

Nemendur í 5.OS hafa á vorönninni unnið stórt og mikið verkefni í landafræði á skólasafninu og með bekkjarkennara sínum. Bekknum var skipt í átta hópa og fékk hver hópur einn landshluta til að vinna með. Nemendur öfluðu upplýsinga um landshlutana í bókum, af Netinu og margmiðlunardiskum, útbjuggu ... [ nánar ]
Mynd með frétt25. maí 2011

Sumarlesturinn

Nemendur í 3. bekk fóru nýlega ásamt Ingibjörgu, bókasafnsfræðingi og kennurum sínum í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar. Rósa barnabókavörður tók á móti hópnum og fræddi nemendur um hvað almenningssafnið hefur upp á að bjóða. Hún sýndi þeim safnið og kynnti fyrir þeim SUMARLESTURINN... [ nánar ]
Mynd með frétt18. apríl 2011

Bókasafnsdagurinn

Bókasafnsdagurinn var fimmtudaginn 14. apríl s.l. en markmiðið með þessum degi er að beina augum þjóðfélagsins að mikilvægi bókasafna. Í tilefni af þessum degi veitti skólasafn Flataskóla tveimur heppnum nemendum bókaverðlaun sem tóku þátt í könnuninni „Bókaverðlaun ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. apríl 2011

Gisting á bókasafninu

Það er hefð fyrir því að sjöundu bekkir fái að gista á skólasafni Flataskóla einu sinni á vetri og lesi þá sérvalda bók. Bekkjarkennarinn og bókasafnsfræðingurinn gista með þeim og er þetta afar vinsæll viðburður sem nemendur minnast oft á frá skólaveru sinni í Flataskóla... [ nánar ]
Mynd með frétt01. apríl 2011

Alþjóðlegi dagur barnabókarinnar

Í tilefni alþjóðlega barnabókadagsins 2. apríl buðu IBBY samtökin upp á upplestur á rás 1 hjá Ríkisútvarpinu á frumfluttri smásögu eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur rithöfund. Allir nemendur skólans hlýddu á söguna í ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. mars 2011

Veffundur hjá 4. bekk

Í dag var veffundur hjá hópi nemenda í 4. bekk. Það var í tengslum við verkefni sem nemendur eru að vinna í tengslum við comeníusarverkefnið "Sköpunarkrafturinn - listin að lesa" sem hófst í haust. Þetta verkefni er unnið í sex löndum og tengjast nemendur saman í mismunandi verkefnum milli landanna... [ nánar ]
Mynd með frétt01. desember 2010

Alexandra Rós varð hlutskörpust

Í tengslum við Comeníusarverkefnið Sköpunarkrafturinn - listin að lesa, var haldin samkeppni um myndtákn (logo) fyrir verkefnið. Hópur í 6. bekk tók að sér að koma með tillögur um merkið og fengu síðan allir nemendur skólans ... [ nánar ]
Mynd með frétt30. nóvember 2010

Upplestur á skólasafni

Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Margrét Örnólfsdóttir kom í heimsókn á skólasafnið föstudaginn 26. nóvember. Hún las upp úr nýútkominni bók sinni „Aþena. Hvað er málið með Haítí“ fyrir nemendur í 5. og 7. bekk en það ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. nóvember 2010

Verðlaun fyrir samskiptaverkefni

Flataskóli hlaut gæðaviðurkenningu frá Landskrifstofu menntaáætlunar ESB í ráðhúsinu í gærdag fyrir verkefnið „Lesum, skrifum og tölum saman“. Þetta voru verðlaun í flokki grunnskóla í landskeppni eTwinning 2009 – 2010. ... [ nánar ]
Mynd með frétt25. nóvember 2010

Flýgur fiskisagan

Undanfarnar vikur hafa 4. bekkir verið að vinna með þema tengt bókinni "Flýgur fiskisagan" eftir Ingólf Steinsson í samvinnu við Ingibjörgu á bókasafninu og Kolbrúnu kennsluráðgjafa. Hópurinn heimsótti Náttúrfræðistofu Kópavogs, Sjóminjasafnið ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. nóvember 2010

Rithöfundaheimsókn

Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson kom í heimsókn á skólasafnið þriðjudaginn 9. nóvember. Hann las upp úr nýútkominni bók sinni „Ertu Guð afi“ fyrir nemendur í 4. og 6. bekk. Bókin fékk nýverið Íslensku barnabókaverðlaunin ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. nóvember 2010

Bangsavika á skólasafninu

Mikið fjör hefur verið á skólasafninu undanfarna daga en þar hefur bangsavika verið haldin hátíðleg. Alþjólegi bangsadagurinn er 27. október og þessa viku koma yngstu nemendur skólans með bangsa að heiman í bókasafnstímann ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. október 2010

Lestrarátak hjá 4. bekk

Lestrarátaki í 4. bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Útbúnir voru lestrarveggur4KÞ og lestrarveggur4AG á Netinu til að halda utan um hvaða bækur nemendur lásu. Þeir skrifuðu stutta umsögn um hverja ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. apríl 2010

Upplestrarkeppni 5. bekkja

morgun fór fram upplestrarkeppni hjá 5. bekk. Fjórir nemendur úr hverjum bekk að undangenginni forkeppni tóku þátt og lásu þeir ljóð að eigin vali og bút úr sögunni Kalli kúluhattur. Keppendur stóðu sig með mikilli prýði, lásu hátt og skýrt og höfðu greinilega undirbúið sig vel. Í fyrsta sæti var Davíð Laufdal 5.HL ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. janúar 2010

Sveinbjörn ferðabangsi

Nú er hann Sveinbjörn ferðabangsi búinn að ferðast víða undanfarið. Hann er meðal annars búinn að fara til útlanda eða til Danmerkur. Einnig ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. janúar 2010

Vefsíða á ensku

Vefsíða með upplýsingum um starfsemi skólasafnsins hefur nú verið þýdd á ensku. Meginástæða þess er sú að verið er að undirbúa Comenius verkefni um safnakennslu með sjö öðrum skólum í Evrópu.... [ nánar ]
Mynd með frétt14. desember 2009

Lestrarátak 7. bekkja

Lestrarátaki í 7. bekk er nú lokið og stóð það yfir í 3. vikur. Átakið tókst mjög vel þar sem minna var hugsað um keppni og meira um að lesa góðar og skemmtilegar bækur og njóta þess að lesa. Að venju fengu mestu lestrarhestarnir ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. nóvember 2009

Norræn bókasafnsvika

Norræna bókasafnsvikan er haldin hátíðleg í mörgum almennings- og skólasöfnum á Norðurlöndunum á hverju ári. Í ár var þemað ,,Stríð og friður á ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. nóvember 2009

Óvenjulegur skólatími

11. nóvember var langur og eflaust minnisstæður skóladagur hjá nemendum í 7. HSG. Eftir hefðbundinn skóladag mættu þeir aftur eftir kvöldmat á skólasafnið þar sem gist var um nóttina með bekkjarkennara og bókasafnsfræðingi... [ nánar ]
Mynd með frétt28. október 2009

Bangsavika á skólasafninu

Við á bókasafninu í Flataskóla höfum haldið bangsaviku undanfarin ár í kringum alþjóðlega bangsadaginn sem er 27. október. Yngstu nemendur skólans koma þá með bangsa ...... [ nánar ]
Mynd með frétt02. júní 2009

Steinaverkefni í 1. bekk

Nemendur í 1. bekk hafa í vetur verið að vinna þemaverkefni um steina. Þeir hlustuðu á sögur og ljóð um steina en síðan horfðu þeir á kynningu þar sem Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. maí 2009

Skólasafnaverðir í heimsókn

Mánudaginn 25. maí heimsóttu tuttugu skólasafnskennarar úr Reykjavík skólasafn Flataskóla. Tilgangur heimsóknar þeirra var að fá kynningu á því hvernig starfseminni á skólasafninu er háttað og hvernig hún er samþætt við upplýsingatækni og ... [ nánar ]
Mynd með frétt22. maí 2009

Sumarlestur

2. HG fór ásamt Ingibjörgu, bókasafnsfræðingi í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar. Rósa, barnabókavörður tók á móti hópnum og fræddi nemendur um hvað almenningssafnið hefur upp á að bjóða, sýndi ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. maí 2009

Gisting og maraþonlestur

Í vetur hafa 7. bekkirnir gist eina nótt með bekkjarkennara sínum og bókasafnsfræðingnum á skólasafninu. Nemendur mættu eftir kvöldmat á skólasafnið og höfðu meðferðis svefnpoka, dýnur og annað sem nauðsynlegt er að hafa þegar gist er að heiman.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. maí 2009

Hafið - 2 bekkur

Í vetur hafa nemendur í 2. bekk verið að vinna verkefni um hafið. Þeir fóru í vettvangsferð niður í fjöru og skoðuðu þar skeljar, kuðunga, þang og ýmislegt fleira áhugavert. Nemendur völdu sér eitt dýr sem lifir í hafinu eða fjörunni til þess að fræðast nánar um og fundu upplýsingar um það í bókum á skólasafninu og skráðu hjá sér.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. apríl 2009

Bókaormaeldi

Í Flataskóla er ýmislegt gert til þess að vekja áhuga nemenda á lestri bóka sér til skemmtunar. Laugardaginn 21. mars var haldin ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir í Gerðubergi sem bar heitið „Bókaormaeldi“.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. febrúar 2009

Lesum saman - verum saman

Í rúmar tvær vikur hefur staðið yfir í Flataskóla lestrarátakið “Lesum saman – verum saman“. Markmið verkefnisins er að þjálfa og örva börn í 1.-4. bekk í lestri en lestur er grunnur að góðum námsárangri.... [ nánar ]
Mynd með frétt13. febrúar 2009

Kaffihúsastemning á skólasafni

Þriðjudaginn 10. febrúar var síðdegisopnun á skólasafninu í tengslum við lestrarátakið Lesum saman - verum saman. Margir lögðu leið sína á bókasafnið eða um 60 manns. Það var gaman að sjá hve margir sáu sér fært að koma og eiga saman góða lestrarstund. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. desember 2008

Bókakynning á aðventunni

Þrír nemendur úr 7. bekk sáu um bókakynningar á skólasafninu á aðventunni og kynntu fyrir nemendum í 6. bekk. Það voru þær Gyða Jóhannsdóttir og Hildigunnur Hermannsdóttir sem sáu um kynninguna á skemmtilegum bókum fyrir stelpurnar.... [ nánar ]
Mynd með frétt18. nóvember 2008

Lestrarátak í 7. bekk

Lestrarátaki í 7. bekk er nú lokið og stóð það yfir í vikutíma. Lásu nemendur samtals rúmlega 23.000 blaðsíður, þannig að hver nemandi hefur lesið að meðaltali 330 blaðsíður. Átakið tókst mjög vel þar sem minna var hugsað um keppni og meira um að lesa góðar og skemmtilegar bækur og njóta þess að lesa. ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. nóvember 2008

Sveinbjörn á Reykjum

Sveinbjörn ferðabangsi er núna á Reykjum í Hrútafirði með 7. bekk en þau dvelja þar þessa viku í tengslum við nám sitt í samfélagsfræði og náttúrufræði. Þetta er annað ferðalagið sem Sveinbjörn fer í síðan hann kom til okkar hér í Flataskóla. Bráðlega verður sett inn ferðasaga hans frá fyrstu ferðinni... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóvember 2008

Skáld í skólum

Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur og Hjörleifur Hjartarson, rithöfundur og þýðandi fluttu dagskrá á skólasafninu fyrir nemendur í 1.-3. bekk í síðustu viku. Þau ferðuðust með nemendum um ævintýraheima þar sem ólíklegustu og jafnvel stórhættulegar skepnur komu við sögu. Iðunn sagði þeim frá Drekasögu en Hjörleifur las úr bók sem hann hefur þýtt og heitir Skaðræðisskepnur. ... [ nánar ]
Mynd með frétt30. október 2008

Bangsavika á skólasafninu.

Við í Flataskóla höfum haldið bangsaviku undanfarin ár í kringum alþjóðlega bangsadaginn sem er 27. október. Yngstu nemendur skólans koma þá með bangsa að heiman í bókasafnstímann. Við lesum bangsasögur, semjum sögur og teiknum myndir og fræðumst um það hvernig fyrsti leikfangabangsinn varð til fyrir rúmum 100 árum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. október 2008

Ljóð unga fólksins

Ljóðasamkeppnin ,,Ljóð unga fólksins” var haldin í sjötta sinn nú í ár. Keppnin er haldin á vegum Þallar, samstarfshóps um barna- og unglingamenningu á bókasöfnum. Þátttakendur eru börn og unglingar á aldrinum 9-16 ára alls staðar af landinu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt24. október 2008

Verðlaunahafi

Bókmenntahátíðin ,,Draugar úti í mýri” var haldin hátíðleg í síðasta mánuði. Nemendur í 4. bekk fóru af því tilefni með skólasafnsverðinum í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar til að hlusta á Iðunni Steinsdóttur lesa draugasögu úr bókinni At og aðrar sögur. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. október 2008

Fíasól og flínki teiknarinn

Rithöfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir og myndlistarmaðurinn Halldór Baldursson fluttu dagskrá á skólasafninu fyrir nemendur í 4. og 5. bekk. Kristín Helga las upp úr nýjustu bók sinni um Fíusól sem er um þessar mundir í prentsmiðjunni og kemur út einhvern næstu daga. Nemendum þótti gaman að fá upplestur úr bók sem ekki er enn tilbúin og verið er að prenta um. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. október 2008

Lestrarátak 3. bekkjar

Lestrarátak í 3. bekk stóð yfir í eina viku og er nú lokið. Nemendur settu sér markmið í byrjun átaksins um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Flestir náðu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu áætlað. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. október 2008

Skáld í skólanum

Rithöfundarnir Þórarinn Eldjárn og Olga Guðrún Árnadóttir heimsóttu nemendur í 6. bekk miðvikudaginn 15. október. Dagskráin sem þau fluttu á skólasafni Flataskóla var mjög skemmtileg og náðu þau vel til barnanna.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. október 2008

Lestrarátak 4. bekkja

Lestrarátaki í 4. bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun átaksins um hversu mikið þeir ætluðu að lesa.... [ nánar ]
Mynd með frétt27. september 2008

Tungumáladagur Evrópu

Föstudaginn 26. september var tungumáladagur Evrópu, en hann er haldinn hátíðlegur í skólum og fyrirtækjum víða í Evrópu. Í ár eru 37 nemendur í Flataskóla af erlendu bergi brotnir og hefur bókavörður og nemendur í tilefni af þessum degi útbúið stutta kynningu á þeim. ... [ nánar ]
Mynd með frétt24. september 2008

Draugar úti í mýri 2008

Um þessar mundir stendur yfir alþjóðleg barnabókahátíð í Norræna húsinu sem ber yfirskriftina Draugar úti í mýri. Í tilefni af þessari hátíð fengu 7. bekkir tvo erlenda og einn íslenskan rithöfund í heimsókn og hlýddu nemendur á upplestur þeirra. ... [ nánar ]
18. ágúst 2008

Fréttir frá bókasafninu

Hér munu birtast fréttir frá bókasafni í vetur. Öflugt starf fer fram á bókasafninu í samstarfi við kennara.... [ nánar ]


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi